Sport

Ég er kominn til að vera

„Það er gott að ná sigri gegn Möltu eftir að hafa aðeins fengið eitt stig úr fyrri leiknum. Það er ansi erfitt að spila gegn svona liðum og þetta minnir á bikarleiki, maður þekkir það heima hvað það er oft erfitt að spila gegn neðri deildar liðum í bikarnum og brjóta þau niður." sagði Grétar Rafn Steinsson eftir leikinn en hann hefur vakið mikla athygli fyrir vasklega framgöngu með landsliðinu. „Ég hef lengi beðið eftir þessu tækifæri og nú er það komið, ég vona að ég hafi bara staðið mig ágætlega og haldi sæti mínu. Ég er ákveðinn í að vera kominn til að vera. Það er til nóg af ungum leikmönnum sem þyrstir í að sýna sig og sanna og spila fyrir liðið. Ég held að það sé mjög jákvætt að það séu að koma smá kynslóðaskipti í þetta." sagði Grétar Rafn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×