Sport

Íran í lokakeppni HM

Íran varð í kvöld önnur þjóðin á eftir Japönum sem hafa tryggt sér sæti í lokakeppni HM í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar þegar lið þeirra sigraði Bahrain 1-0 í Asíuriðli #2. Hundruð þúsindir íbúa landsins þustu út á götur í höfuðborginni Tehran í gleðivímu sprengjandi flugelda, blásandi í flautur og veifandi íranska þjóðfánanum. Og unga fólkið keyrir um göturnar og hallar sér út um bílrúður með popptónlistina í botni. Íranir þurftu aðeins eitt stig úr leiknum til að komast í þriðja sinn í sögunni í lokakeppni HM en þeir tróna á toppi riðilsins með 13 stig eftir 5 leiki, einu ofar en Japanir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×