Sport

ÍBV náði ekki að sigra heima

ÍBV og B36 frá Færeyjum gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða en leiknum var að ljúka á Hásteinsvellinum í Eyjum. Færeyska liðið skoraði strax á 7. mínútu en Pétur Óskar Sigurðsson jafnaði á 25. mínútu. Færeyingarnir byrjuðu leikinn mjög vel og skoruðu eftir aðeins sjö mínútur. Fyrirgjöf Bergs Midjord sigldi alla leið framhjá Birki og inn í markið. Þetta var mjög klaufalegt mark. Pétur Óskar Sigurðsson náði að jafna leikinn 18 mínútum síðar á laglegan hátt. Pétur vann boltann lék á tvo varnarmenn og skoraði glæsilega. Síðari leikur liðanna fer fram í Færeyjum eftir hálfan mánuð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×