Enski boltinn

United úr leik - Hermann skaut Charlton áfram

Freddy Eastwood skoraði sigurmark Southend beint úr aukaspyrnu á 27. mínútu
Freddy Eastwood skoraði sigurmark Southend beint úr aukaspyrnu á 27. mínútu NordicPhotos/GettyImages

Deildarbikarmeistarar Manchester United eru úr leik í keppninni þetta árið eftir 1-0 tap gegn Southend. Hermann Hreiðarsson og félagar í Charlton unnu nauman sigur á Chesterfield eftir framlengdan leik og vítakeppni, en Hermann skoraði sigurmark Charlton í vítakeppninni.

Newcastle sló Watford út í vítaspyrnukeppni eftir að staðan hafði verið jöfn 2-2 eftir venjulegan leiktíma og Wycombe sló Notts County úr keppni með 1-0 sigri á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×