Menning

Kvikur pallíettufoss á gafli húss

Theresa Himmer fyrir framan verk sitt, Sequinfall, í miðborg Reykjavíkur.
Theresa Himmer fyrir framan verk sitt, Sequinfall, í miðborg Reykjavíkur.
Ung kona sem hér hefur starfað um hríð tekur þátt í vakningu myndlistarmanna þessa dagana með óvenjulegum hætti. Hún hefur gert veggmynd á gaflinn á Bankastræti 6 úr pallíettum. Verkið kallar Theresa Himmer Sequinfall og vísar þar til vakningarhátíðar starfssystkina sinna Sequences.

Theresa hefur dvalið hér frá því vorið 2005 og starfar á Studio Granda. Hún er menntaður arkitekt frá Arkitektaskólanum í Árósum og lagði þar stund á tilraunir í byggingarlist og landslagshönnun.

Verkið vísar beint í íslenska hefð í myndlist, fossamyndirnar. Það er gert úr skrautefni sem oftast er notað í skartklæði kvenna og leikhúsfólks, glitplötur hringlaga sem þekktastar eru undir alþjóðlega heitinu, pallíettur. Hún hefur fest 13.500 slíkar á nagla á gafl í miðborg Reykjavíkur en undir er óhrjálegur steinveggur með veggjakroti. Þegar vind hrærir verður fossmyndin á veggnum lifandi.

Í tilkynningu frá Sequences er vakin athygli á að efnið er í raun í andstöðu við það náttúrulega fyrirbæri sem myndin dregur fram á alls ólíklegum stað: hráefnið er úr plasti í miðri borg á ókræsilegum gafli. Þessi gervifoss er á stöðugri hreyfingu, næstum lifandi, eins og náttúran sjálf.

Vakning myndlistarmanna hefur á hátíðinni sótt inn á opinber svæði með áköfum og upplýsandi hætti. Verk Theresu er þar engin undantekning og verður vísast vegfarendum gleðigjafi meðan það er uppi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.