Tónlist

Rass bætist í hópinn

rass Hljómsveitin Rass spilar á afmælistónleikum Sykurmolanna í Höllinni.
rass Hljómsveitin Rass spilar á afmælistónleikum Sykurmolanna í Höllinni.

Hljómsveitin Rass og plötusnúðurinn Dj@mundo koma fram á afmælistónleikum Sykurmolanna í Laugardalshöll á föstudaginn. Þegar hafði verið tilkynnt um upphitun Múm.

Dj@mundo hefur verið einn áhrifamesti plötusnúður landsins undanfarna tvo áratugi. Hann hefur haldið sig frá sviðsljósinu að mestu, en látið að sér kveða í ráðgjafarstarfi fyrir aðra íslenska plötusnúða varðandi tónlistarval.

Enn eru til miðar á tónleikana. Miðasala fer fram í verslunum Skífunnar í Kringlunni og Smáralind, BT á Akureyri, Selfossi og Egilsstöðum og á midi.is. Miðaverð er 5.000 krónur auk 350 króna miðagjalds.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.