Menning

Tilnefnd til verðlauna

AndrÉs Kolbeinsson
AndrÉs Kolbeinsson

það styttist í að Myndstefsverðlaunin svokölluðu verði veitt og var tilkynnt á föstudag hverjir væru tilnefndir að þessu sinni. Sex myndhöfundar, þrjár konur og þrír karlar, keppa um heiðursverðlaun Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands, en forseti Íslands úthlutar þeim hinn 21. nóvember næstkomandi. Það verður í annað sinn sem verðlaunum Myndstefs er úthlutað.

Þau eru veitt fyrir afburðaframlag til myndlistar, framúrskarandi myndverk eða sýningu. Verðlaunin nema samtals einni milljón króna. Landsbanki Íslands er fjárhagslegur bakhjarl heiðursverðlaunanna og leggur til helming verðlaunafjárins en hinn helmingurinn kemur úr sjóðum Myndstefs, sem er höfundarréttarsjóður myndlistar í landinu.

Andrés Kolbeinsson fyrir merkt framlag til íslenskrar ljósmyndalistar sem kynnt var almenningi í fyrsta sinn á yfirlitssýningu á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur sumarið 2006.

Þessi eru tilnefnd í ár:
Atli Hilmarsson

Atli Hilmarsson fyrir fjölþætt verkefni á sviði grafískrar hönnunar, meðal annars í tengslum við landnámssýninguna Reykjavík 871+/- í kjallara Aðalstrætis 16 og Sjónlist 2006 á Akureyri.

 

Birgir AndrÉsson

Birgir Andrésson fyrir persónulegt framlag á sviði myndlistar og frumlega túlkun á íslenskum þjóðareinkennum í verkum sínum á yfirlitssýningu í Listasafni Íslands vorið 2005.

 

Sigríður Sigþórsdóttir

Sigríður Sigþórsdóttir, VA arkitektum, fyrir hönnun lækningalindar Bláa lónsins og Landnámsseturs í Borgarnesi, þar sem næm tilfinning og virðing fyrir náttúrulegu umhverfi og sögulegu samhengi er einkennandi.

 

Rúrí
Rúrí fyrir gjörninginn Tileinkun, sem fram fór við Drekkingarhyl á Þingvöllum í tengslum við samsýninguna Mega vott í Hafnarborg haustið 2006, og fyrir áhrifamikið framlag til íslenskrar myndlistar.
Valgerður Bergsdóttir

Valgerður Bergsdóttir fyrir steinda glugga í Reykholtskirkju, sýningarnar Teikn og hnit og AND-LIT í Gerðarsafni og fyrir fjölþætt störf á vettvangi íslenskrar myndlistar sem kennari, stjórnandi og myndlistarmaður.

Tilnefningar bera með sér fjölbreytileikann sem er í myndlist landsmanna: ljósmyndari sem átti sitt besta skeið á sjötta og sjöunda áratugnum en tekur enn myndir; myndlistarmaður sprottinn af akri konseftlistar; gerningakona og skúlptúristi, arkitekt, grafískur hönnuður og glerlistakona og kennari með meiru.

 

Þriggja manna dómnefnd, skipuð þeim Valgerði Hauksdóttur myndlistarmanni, Pétri Ármannssyni arkitekt og Björgólfi Guðmundssyni, stjórnarformanni Landsbankans, velur úr tillögum. Innan vébanda Myndstefs eru á fjórtánda hundrað manns í sex aðildarfélögum: Sambandi íslenskra myndlistarmanna, Ljósmyndarafélagi Íslands, Félagi íslenskra teiknara, Félagi grafískra teiknara, Arkitektafélagi Íslands og Félagi leikmynda- og búningahöfunda. Einnig eiga aðild að Myndstefi allmargir erfingjar að myndhöfundarétti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×