Getafe hefur tak á Real Madrid 15. október 2006 11:15 Vonbrigðin leyna sér ekki í svipnum á Roberto Carlos hjá Real Madrid eftir leikinn í gærkvöldi NordicPhotos/GettyImages
Stórliðið Real Madrid reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við granna sína í smáliðinu Getafe í spænska boltanum í gær og tapaði 1-0 á útivelli. Eins og til að fullkomna ömurlegt kvöld fyrir Real, lék framherjinn Ronaldo reka sig af velli fyrir kjaftbrúk í lok leiksins og verður því í banni í næsta leik þegar Real mætir Barcelona. Það var miðvörðurinn Alexis sem færði lærisveinum Bernd Schuster sigurinn með marki eftir 15 mínútna leik í síðari hálfleik og segja spænskir miðlar að hér hafi verið um lélegustu frammistöðu Real á leiktíðinni að ræða. Liðið var klaufalegt í vörninni, andlaust á miðjunni og bitlaust í sóknarleiknum. Smálið Getafe hefur því gott tak á risunum grönnum sínum, því síðan liðið vann sér í fyrsta sinn sæti í efstu deild fyrir þremur árum, hefur það unnið tvo og gert eitt jafntefli við Real á heimavelli sínum. Real er í fjórða sæti deildarinnar eftir tapið og gæti færst neðar í töflunni þegar liðin í næsta nágrenni við það í deildinni spila leikina sem þau eiga til góða. Getafe er í áttunda sætinu, aðeins stigi á eftir grönnum sínum.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið Glódís Perla íþróttamaður ársins með fullt hús stiga Sport Þórir Hergeirsson þjálfari ársins Sport Þessi hlutu atkvæði sem Íþróttamaður ársins, lið ársins og þjálfari ársins Sport Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Enski boltinn Tindastóll upp fyrir Njarðvík Körfubolti Tryggvi Snær öflugur en það dugði skammt Körfubolti Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli Fótbolti Björg Elín íþróttaeldhugi ársins Sport Karlalið Vals er lið ársins 2024 Sport Sagt að deyja eftir að Ísland komst ekki í undanúrslit Handbolti Fleiri fréttir Pep neitar því að sínir menn séu komnir á beinu brautina Willum Þór skoraði þegar Birmingham tyllti sér á toppinn Arsenal mistókst að setja aukna pressu á Liverpool Albert ekki með þegar Fiorentina steinlá gegn Napoli Skrípamark en Mikael og félagar fengu bara stig „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis Slæmt gengi gestanna heldur áfram Meistararnir unnu annan leikinn í röð Isak með Newcastle áfram á miklu flugi Olmo og Victor í algjörri óvissu eftir að beiðni Barcelona var hafnað Valdi ekki Salah í lið ársins hingað til KA fær lykilmann úr Eyjum Miðvörður Chelsea illa meiddur enn á ný Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Sjá meira