Enski boltinn

Silvestre vill reyna fyrir sér á Spáni

Mikael Silvestre hefur ekki áhuga á að leika í heimalandi sínu Frakklandi
Mikael Silvestre hefur ekki áhuga á að leika í heimalandi sínu Frakklandi NordicPhotos/GettyImages

Franski varnarmaðurinn Mikael Silvestre hjá Manchester United segist gjarnan vilja breyta til og spila jafnvel á Spáni áður en hann leggur skóna á hilluna. Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur misst sæti sitt í liði United til Nemanja Vidic, en segist engu að síður sáttur við sitt hlutskipti.

"Ég gæti alveg hugsað mér að fara frá United einn daginn, þó ég taki það fram að ég sé mjög sáttur hjá félaginu í dag. Ég hef ekki áhuga á því að leika í Frakklandi því þar þekki ég þegar vel til. Mig myndi heldur langa að prófa eitthvað nýtt, eins og að spila t.d. á Spáni," sagði Silvestre.

"Ég hef prófað að spila á Ítalíu og Englandi og á því eftir að prófa Spán," sagði Frakkinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×