Fótbolti

Stankovic knattspyrnumaður ársins

Dejan Stankovic
Dejan Stankovic NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn sterki Dejan Stankovic hjá Inter Milan hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins í Serbíu, en hann er fyrsti leikmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun eftir að Serbía og Svartfjallaland skiptust upp.

Stankovic var lykilmaður í liði Inter sem varð Ítalíumeistari í fyrra og þá er liðið á toppi deildarinnar í dag. Hann gegndi einnig mikilvægu hlutverki í liði Serba á HM í sumar. Stankovic er 28 ára gamall. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×