Enski boltinn

Segja Eggert gera tilboð fyrir helgi

Breska dagblaðið Independent heldur því fram í dag að Eggert Magnússon muni gera formlegt 75 milljón punda kauptilboð í knattspyrnufélagið West Ham fyrir helgina. Því er jafnframt haldið fram að stjórn félagsins muni hugsa málið yfir helgina og mæla með því eftir helgina ef stjórnarmönnum verður tilboðið að skapi.

Heimildarmenn blaðsins halda því fram að nú séu líkur farnar að benda sterklega til þess að íslensku fjárfestarnir séu hvað líklegastir til að kaupa félagið, því hópur Kia Joorabchian hafi dregist aftur úr í kapphlaupinu á liðnum dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×