Innlent

Á leið til Damaskus að sækja Íslendinga og aðra Norðurlandabúa

Vél frá flugfélaginu Air Atlanta Icelandic er á leið til Damaskus að sækja Íslendinga og aðra Norðurlandabúa. Vélin, sem er í eigu Avion Group og tekur rúmlega 450 manns í sæti, leggur af stað frá London rúmlega 10 í kvöld.

Áætlað er að vélin lendi rétt fyrir hálf þrjú í nótt og haldi aftur frá Damaskus rétt fyrir fjögur. Vélin lendir í Kaupmannahöfn um sex í fyrramálið að íslenskum tíma. Íslendingarnir þrír sem eru á vegum Air Atlanta í Beirút koma til með að fljúga með vélinni líkt og aðrir Íslendingar sem hafa þurft að flýja átökin í Líbanon




Fleiri fréttir

Sjá meira


×