Sport

Arca til Boro

Gareth Southgate hefur verið önnum kafinn í vikunni
Gareth Southgate hefur verið önnum kafinn í vikunni NordicPhotos/GettyImages
Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, keypti í dag fyrsta leikmanninn síðan hann tók við stjórnartaumunum af Steve McClaren. Hér er um að ræða miðjumanninn Julio Arca sem áður lék með liði Sunderland. Arca er 25 ára gamall Argentínumaður og hafði verið hjá Sunderland í fimm ár. Kaupverðið er 1,75 milljón punda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×