Sport

Stíg aldrei fæti inn í Helsinki framar

Eremenko segir Finna hrokafulla og dauðsér eftir því að hafa gerst finnskur ríkisborgari
Eremenko segir Finna hrokafulla og dauðsér eftir því að hafa gerst finnskur ríkisborgari NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Alexei Eremenko segist sjá eftir því að hafa gefið kost á sér í finnska landsliðið, því hann hafi komist að því að undanförnu að hann sé miklu meiri Rússi en hann gerði sér grein fyrir. Eremenko fæddist í Moskvu, en flutti til Finnlands þegar hann var sex ára og gerðist finnskur ríkisborgari. Hann segist aldrei ætla að stíga fæti til Helsinki aftur.

Eremenko spilar með Saturn Ramenskoye í rússnesku úrvalsdeildinni, en þessi 23 ára gamli framherji var markahæsti leikmaður finna í undankeppni HM og hefur spilað 24 landsleiki fyrir Finna. Hann segist ekki þola finna og kann miklu betur við Svía.

"Mér líður miklu betur í Rússlandi en í Finnlandi, því ég er auðvitað Rússi. Þetta rann ekki upp fyrir mér fyrr en ég fór að spila í Rússlandi," sagði Eremenko, en faðir hans spilaði með liði í Helsinki á sínum tíma.

"Ég væri að ljúga ef ég segði að ég vildi frekar spila með finnska landsliðinu en því rússneska, en ég vissi ekki hvað framtíðin bar í skauti sér þegar ég gerðist finnskur ríkisborgari og datt aldrei í hug að ég ætti eftir að eiga möguleika á að komast í rússneska landsliðið. Ég dauðsé eftir þessu, en ég get víst ekki breytt neinu úr þessu," sagði leikmaðurinn, en yngri bróðir hans er einmitt í U-21 árs landsliði Finna.

Eremenko segist hafa orðið fyrir fordómum í Finnlandi. "Ég hef fengið að heyra allt mögulegt á ferli mínum í Finnlandi, því ég lít auðvitað ekki út eins og flestir hér í finnlandi. Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég vil ekki búa í Finnlandi og kem því aðeins hingað til að heimsækja foreldra mína. Ég er rússi þó ég leiki fyrir Finnland, en forðast að koma til landsins og stíg aldrei fæti til Helsinki framar," sagði framherjinn, sem talar bæði sænsku og finnsku.

"Finnar eru hrokafullir og leiðinlegir, en Svíarnir eru miklu vingjarnlegri og ég held að það sé ástæðan fyrir því að þeir fara í taugarnar á hver öðrum," sagði Eremenko að lokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×