Enski boltinn

Tottenham án lykilmanna um jólin

Robbie Keane verður ekki meira með Tottenham á árinu, frekar en Jermaine Jenas
Robbie Keane verður ekki meira með Tottenham á árinu, frekar en Jermaine Jenas NordicPhotos/GettyImages
Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham verður að sætta sig við að vera án tveggja lykilmanna í árlegri leikjatörn yfir jólin, en í dag tilkynnti Martin Jol knattspyrnustjóri að Robbie Keane yrði frá í 5-6 vikur vegna hnémeiðsla og Jermaine Jenas í um mánuð vegna ökklameiðsla. Tottenham á því aðeins tvo leikfæra framherja í hóp sínum því Egyptinn Mido verður einnig frá um óákveðinn tíma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×