Menning

Danstrúðar spinna

Allt getur gerst Björn Ingi Hilmarsson, Guðmundur Elías Knudsen og Peter Anderson mynda dansleikhúshópinn Watch my Back.
Allt getur gerst Björn Ingi Hilmarsson, Guðmundur Elías Knudsen og Peter Anderson mynda dansleikhúshópinn Watch my Back.

Gættu mín eða Watch My Back er nýr dansleikhúshópur sem samanstendur af þremur karlmönnum og listamönnum LR og Íd. Tríóið skipa þeir Peter Anderson dansari og danshöfundur, Guðmundur Elías Knudsen dansari og Björn Ingi Hilmarsson leikari. Þeir kalla iðju sína dansleikhússport og segja það nýja tegund afþreyingarlistar.

Hópurinn spinnur gamansamar senur með hjálp áhorfenda. Áhorfendur gefa leikurum/dönsurum stikkorð sem þeir spinna út frá. Segir í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsi: „Þetta er viðkvæmt en skemmtilegt „listform“ þar sem allt getur gerst – það er aðeins spurning um hugmyndaflug áhorfenda.“

Leikið verður í kaffileikhússtemningu í forsal Borgarleikhússins þar sem barinn verður opinn, en allur leikur fer fram á ensku. Fjórar sýningar verða hjá hópnum, hin fyrsta í kvöld kl. 20.10. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Borgarleikhússins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.