Menning

Litirnir dansa

Sýningin Hugarheimar verður opnuð í Gerðubergi í dag.
Sýningin Hugarheimar verður opnuð í Gerðubergi í dag.

Guðrún Bergsdóttir opnar sýningu á útsaumsverkum og tússteikningum í Boganum í Gerðubergi í dag. Litirnir dansa og iða fullir af kátínu og frelsiskennd og vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hugarheimi Guðrúnar Bergsdóttur.

Guðrún hefur sótt fjölmörg námskeið hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðra, nú Fjölmennt, meðal annars í textílsaumi og vélsaumi. Krosssaumsmyndirnar sem hún gerir eru ólíkar því sem hún gerði í skólanum; þar saumaði hún út áteiknað mynstur en núna kemur innblásturinn algerlega úr hennar eigin heimi og myndefnið er spunnið upp jöfnum höndum.

Árið 2000 fór Guðrún að vinna sjálfstætt með nál sinni og þæfði og í dag fremur hún algerlega frjálsan spunadans; einu mörkin eru stærð strammans því hugarheimur Guðrúnar spannar óravíddir. Áður en Guðrún tók til við að sauma út hafði hún málað tússmyndir sem bera sömu einkenni; sterkir litir og smá samfléttuð form með fullkomna og sjálfsprottna myndbyggingu, sem skólagengnir myndlistarmenn mættu öfunda hana af.

Guðrún hefur síðastliðinn áratug unnið í Ási vinnustofu, sem er verndaður vinnustaður á vegum Styrktarfélags vangefinna, og síðustu sumur einnig í gróðurhúsinu í Bjarkarási hluta úr degi. Sýningarstjóri er Harpa Björnsdóttir en sýningin stendur til 21. janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.