Viðskipti innlent

Fjármálastjóri Avion Group lætur af störfum

Steingrímur Pétursson, fjármálastjóri Avion Group, hefur ákveðið að láta af starfi sínu og hefur hann samið um starfslok sín hjá félaginu. Steingrimur hefur verið fjármálastjóri Avion Group frá því að félagið keypti Eimskip í júní í fyrra, en áður hafði hann starfað hjá Eimskip frá árinu 2004.

Í tilkynningu frá Avion Group kemur fram að Steingrímur muni starfa áfram náið með stjórnendum og eigendum félagsins auk þess sem hann mun sitja áfram í stjórn Eimskips og Air Atlanta Icelandic, sem eru tvö stærstu dótturfélög Avion Group.  Loks mun Steingrímur sitja í stjórn Avion Aircraft Trading sem Avion Group á 49 prósenta eignarhlut í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×