Sport

Glazer laus af sjúkrahúsi eftir heilablóðfall

Glazer fékk heilablóðfall um páskana
Glazer fékk heilablóðfall um páskana NordicPhotos/GettyImages
Malcom Glazer, eigandi Manchester United, var í dag útskrifaður af sjúkrahúsi í Flórida eftir að hafa fengið heilablóðfall um páskana. Glazer, sem er 78 ára gamall, keypti Manchester United fyrir 790 milljónir punda í fyrra við lítinn fögnuð stuðningsmanna liðsins á Englandi. Glazer á að sögn erfitt með mál og getur lítið hreyft aðra höndina enn sem komið er, en á að vera á ágætum batavegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×