Sport

Framtíð mín er á Anfield

Xabi Alonso er ánægður hjá Liverpool
Xabi Alonso er ánægður hjá Liverpool NordicPhotos/GettyImages

Spænski miðjumaðurinn Xabi Alonso hjá Liverpool er nú kominn aftur til æfinga með liðinu eftir sumarfrí. Hann segir framtíð sína klárlega vera á Anfield og segist ekkert kippa sér upp við orðróm á borð við þann sem fór af stað fyrir nokkru um að hann væri á leið til Real Madrid í heimalandi sínu.

"Ég er mjög ánægður hérna hjá Liverpool og er vanur að loka eyrunum fyrir slúðri sem þessu. Ég hef notið mín til fullnustu í þau tvö ár sem ég hef spilað fyrir Liverpool og ætla mér að vera hér áfram," sagði Alonso.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×