Menning

Bókmenning frá Berlín

Bóklist í þjóðmenningarhúsinu Þýsk listaverk í bókaformi.
Bóklist í þjóðmenningarhúsinu Þýsk listaverk í bókaformi.

Sýning á bókum þýska forlagsins Edition Mariannenpresse verður opnuð í bókasal Þjóðmenningarhússins í dag. Með sýningunni sem kallast Berlin Excursion er boðið til skoðunarferðar um þann geira menningarlífs Berlínar sem getur af sér sérstæðar bækur, sannkölluð listaverk.

Sýndar verða um 40 bækur eftir jafn marga höfunda og myndlistarmenn. Þær eru sérstaklega hannaðar skrautbækur sem gefnar eru út í mjög takmörkuðu tölusettu upplagi. Forlagið gefur að meðaltali út fjórar bækur á ári og flestar af þeim bókum sem sýndar verða á sýningunni eru ófáanlegar.

Hugmyndin að baki sýningunni er að vekja athygli á sérstæðri bókaútgáfu sem tvinnar saman fjölbreytt efni, gamaldags prenttækni en einnig nútímalegar hugmyndir. Bækurnar eru flestar skreyttar grafíkmyndum, en margar af myndunum eru í teiknimyndastíl. Allt útlit bókanna er mjög sérstakt og er hver útgáfa fyrir sig listaverk.

Sýning verður opnuð kl. 18 en við opnunina flytja Hr. Johann Wenzel sendiherra Þýskalands, Hannes Schwenger útgefandi Mariannenpresse og Guðríður Sigurðardóttir forstöðumaður Þjóðmenningarhússins ávörp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.