Sport

Stutt gaman hjá Boskamp í Belgíu

Johan Boskamp ríður ekki feitum hesti frá Standard Liege
Johan Boskamp ríður ekki feitum hesti frá Standard Liege NordicPhotos/GettyImages
Ferill hollenska knattspyrnuþjálfarans Johan Boskamp hjá liði Standard Liege í Belgíu varð ekki sérlega langur eða glæsilegur, því á blaðamannafundi í dag verður tilkynnt að honum hafi verið sagt upp störfum. Liðið hafnaði í öðru sæti í deildinni á síðustu leiktíð en undir stjórn Boskamp hefur það aðeins fengið tvö stig úr fyrstu fjórum leikjunum í sumar. Boskamp var áður stjóri Stoke City á Englandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×