Körfubolti

Gamli boltinn notaður á ný í janúar

Allar helstu stjörnurnar í NBA verða fegnar að losna við gerviefnatuðruna
Allar helstu stjörnurnar í NBA verða fegnar að losna við gerviefnatuðruna NordicPhotos/GettyImages

David Stern, yfirmaður NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú viðurkennt ósigur sinn og staðfesti í gær að gamli leðurboltinn verði tekinn fram að ný þann 1. janúar næstkomandi eftir að allar helstu stjörnur deildarinnar lýstu yfir óánægju sinni með nýja gerviefnaboltann.

Stern ákvað að taka nýja boltann í notkun í haust án þess að ráðfæra sig við leikmenn, sem brugðust reiðir við og segja flestir að boltinn sé hreint og beint drasl. Þó gamla leðurboltanum verði eflaust tekið fagnandi, hafa leikmenn engu að síður látið í ljós óánægju sína með að gamli boltinn verði tekinn í notkun aftur á miðju tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×