Enski boltinn

Shevchenko mun aldrei leika vel á Englandi

Shevchenko á ekki sjö dagana sæla á Englandi í vetur
Shevchenko á ekki sjö dagana sæla á Englandi í vetur NordicPhotos/GettyImages

Tony Cascarino, fyrrum leikmaður Chelsea, segir að Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko muni aldrei ná sér á strik með Chelsea og segir að ferill hans verði rjúkandi rúst ef hann komi sér ekki frá Englandi.

Shevchenko hefur skoraði 4 mörk í 19 leikjum í öllum keppnum með Chelsea í vetur eftir að hafa verið einn besti - ef ekki besti - framherji heimsins undanfarinn áratug. Cascarino spilaði á sínum tíma í nær tvo áratugi á Englandi og í Frakklandi og hann segir að Shevchenko sé í mjög vondum málum.

"Ég er viss um að Shevchenko nær aldrei að sýna sitt rétta andlit á Englandi og ég hef trú á því að stærsta vandamál hans sé á andlega sviðinu. Mér sýnist hann hreinlega vanta allt sjálfstraust og það hefur sýnt sig að það getur komið fyrir þá bestu eins og aðra. Hann er eins og lítill og hræddur strákur úti á vellinum og sjálfstraust hans er í molum - nokkuð sem maður á ekki von á að sjá frá slíkum leikmanni.

Það hefur reynst honum erfitt að fóta sig á Englandi og það er auðvitað hægt að koma upp með góðar afsakanir fyrir hann - en mergurinn málsins er sá að væntingarnar til hans verða alltaf gríðarlegar. Ekki bara frá okkur, heldur einnig frá honum sjálfum - og því lengur sem það viðgengst, því erfiðara verður allt fyrir hann.

Það er gríðarlega erfitt að rífa sig upp þegar mótlætið hefur verið svona mikið svona lengi og bara fyrir nokkrum dögum var Mourinho knattspyrnustjóri að lýsa því yfir að Shevchenko væri ekki einn af þeim leikmönnum sem hann telji ósnertanlega í hóp sínum. Hvernig haldið þið að hann bregðist við þessu?" sagði Cascarino í samtali við vef Eurosport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×