Sport

Orðað við Iaquinta hjá Udinese

Vincenzo Iaquinta er sagður vera í sigtinu hjá Martin Jol og félögum í Tottenham
Vincenzo Iaquinta er sagður vera í sigtinu hjá Martin Jol og félögum í Tottenham NordicPhotos/GettyImages
Breska dagblaðið Mirror greinir frá því í dag að Tottenham Hotspurs sé nú að undirbúa 7 milljón punda tilboð í ítalska sóknarmanninn Vincenzo Iaquinta hjá Udinese. Þá segir í sömu frétt að félagið sé í viðræðum við Portsmouth um að selja þá Noe Pamarot, Sean Davis og Pedro Mendes fyrir alls um 5 milljónir punda til að fjármagna kaupin á Iaquinta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×