Sport

Eiður í byrjunarliðinu

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem mætir Sunderland á útivelli í ensku úrvalsdeildinni nú kl. 16. Leikurinn í dag markar tímamót fyrir Eið en þetta er 250. leikur hans fyrir félagið. Chelsea er án Didier Drogba í næstu leikjum þar sem hann sinnir landsliðsskyldu með Fílabeinsströndinni. Carlton Cole mun leysa Drogba af hólmi á meðan en hann vermir varamannabekkinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×