Sport

Ólafur hrifinn af Strand

Ólafur Stefánsson átti ekki til orð yfir frammistöðu Kjetil Strand í gær
Ólafur Stefánsson átti ekki til orð yfir frammistöðu Kjetil Strand í gær

Norskir fjölmiðlar halda skiljanlega ekki vatni yfir landsliðsmanninum Kjetil Strand, sem setti nýtt Evrópumótsmet í gær þegar hann skoraði 19 mörk í leiknum gegn Íslendingum í milliriðli. Á heimasíðu norska blaðsins VG er haft eftir Ólafi Stefánssyni að Strand sé nógu góður til að spila með liði í spænska eða þýska handboltanum.

Blaðamaður VG veltir í grein sinni vöngum yfir því hvernig maður, sem hefur til þessa ekki verið að gera sérstaka hluti í dönsku deildinni, fari að því að skora 19 mörk gegn jafn sterku liði og því íslenska.

"Frammistaða strand var ótrúleg," er haft eftir Ólafi Stefánssyni, sem blaðamaður sagði ekki hafa vitað með hvaða félagsliði Strand spilaði. "Maður af hans styrkleika á klárlega heima í liði í Þýskalandi eða á Spáni," sagði Ólafur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×