Erlent

Eigendur Dagbladet bjóða í Orkla Medier

Eigendur norska blaðsins Dagbladet hafa ákveðið að bjóða í norska fjölmiðlafyrirtækið Orkla Medier, sem rekur meðal annars dönsku blöðin Berlingske Tidende, BT og Weekendavisen. Þetta kemur fram á vef Jótlandspóstsins. Dagsbrún, móðurfélag 365 miðla, sýndi Orkla Medier áhuga á dögunum ásamt nokkrum öðrum norrænum fjölmiðlafyrirtækjum en nú er útlit fyrir að Orkla verði áfram í eigu Norðmanna. Forsvarsemenn Dagbladet vilja ekki gefa upp hversu mikið þeir bjóða í Orkla en samkvæmt Jótlandspóstinum er fyrir tækið metið á um 70-90 milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×