Sport

Ronaldo settur út úr liðinu

Ronaldo verður líklega fyrsti maðurinn sem fer frá Real Madrid í sumar ef marka má þróun mála undanfarið
Ronaldo verður líklega fyrsti maðurinn sem fer frá Real Madrid í sumar ef marka má þróun mála undanfarið NordicPhotos/GettyImages

Brasilíski framherjinn Ronaldo verður ekki í leikmannahópi Real Madrid í grannaslag liðsins við Atletico Madrid um helgina og talið er að það sé að frumkvæði forseta félagsins sem hefur boðað nýja stefnu í leikmannamálum hjá félaginu.

Fernando Martin sem er nýtekinn við forsetaembætti hjá félaginu hefur sagt að menn sem ekki hafa lagt sig 100% fram að undanförnu séu óvelkomnir og geti farið frá félaginu. Enginn hefur verið gagnrýndur meira en einmitt Ronaldo, sem hefur látið í veðri vaka að hann sé óánægður í herbúðum liðsins.

Þjálfari liðsins vill meina að það sé aðeins taktísk ákvörðun að hafa Ronaldo ekki í liðinu um helgina, en félagi hans Julio Baptista segir ráðstöfun þessi sé til að hvíla leikmanninn fyrir átökin í Meistaradeildinni í næstu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×