Sport

Óvæntur stórsigur Espanyol

Luis Garcia skoraði þriðja mark Espanyol í kvöld og fagnar því hér að hætti hússins
Luis Garcia skoraði þriðja mark Espanyol í kvöld og fagnar því hér að hætti hússins NordicPhotos/GettyImages
Espanyol varð í kvöld spænskur bikarmeistari eftir að liðið vann stórsigur á Real Zaragoza 4-1 á Santiago Bernabeu vellinum í Madrid. Espanyol komst yfir strax á annari mínútu leiksins og sigur liðsins var í raun aldrei í hættu eftir það, þó ekki hefði liðið áberandi yfirburði á vellinum. Sigurinn tryggir Espanyol sæti í Evrópukeppni félagsliða á næstu leiktíð. Leikurinn var sýndur beint á Sýn Extra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×