Erlent

Ítalir eru heimsmeistarar í knattspyrnu

Ítalir ærðust af fögnuði þegar sigurinn var í höfn
Ítalir ærðust af fögnuði þegar sigurinn var í höfn AFP
Ítalir eru heimsmeistarar í knattspyrnu eftir sigur á Frökkum í úrslitaleik HM í kvöld. Zinedine Zidane kom Frökkum yfir með marki úr vítaspyrnu í upphafi leiksins, en Marco Materazzi jafnaði metin fyrir ítalska liðið skömmu síðar. Liðunum tókst svo ekki að skora í venjulegum leiktíma eða í framlengingu, en taugar Ítala héldu betur í vítakeppninni. Aðeins framherjinn David Trezeguet misnotaði spyrnu sína þegar skot hans hafnaði í slá og Ítalir því heimsmeistarar 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×