Sport

Baldomir vann sannfærandi sigur á Gatti

Baldomir þjarmaði hressilega að Gatti í nótt og hér má sjá Argentínumanninn slá hann í gólfið í níundu lotunni
Baldomir þjarmaði hressilega að Gatti í nótt og hér má sjá Argentínumanninn slá hann í gólfið í níundu lotunni NordicPhotos/GettyImages
Argentínumaðurinn Carlos Alberto Baldomir vann í nótt sannfærandi sigur á Kanadamanninum Arturo Gatty í bardaga þeirra um WBC-titilinn í veltivigt. Baldomir hafði yfirhöndina allan tímann og sló Gatti tvisvar niður með stuttu millibili í 9. lotu og var í kjölfarið dæmdur sigurinn. Gatti sagðist vera að hugsa um að leggja hanskana á hilluna eftir bardagann, en Baldomir hefur augastað á Bretanum Ricky Hatton í framtíðinni. Bardaginn var sýndur beint á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×