Sport

Frábær sigur hjá Blikum

Blikastúlkur eru í ágætum málum í Evrópukeppninni eftir glæsilegan sigur í kvöld
Blikastúlkur eru í ágætum málum í Evrópukeppninni eftir glæsilegan sigur í kvöld Mynd/E.Ól

Kvennalið Breiðabliks vann í kvöld frækinn 2-1 sigur á finnsku meisturunum HJK Helsinki í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Kópavogsliðsins gegn heimamönnum rétt fyrir leikslok, en áður hafði Ólína Viðarsdóttir skorað fyrir Blika.

Guðmundur Magnússon sagði fyrir leikinn að þetta væri algjör lykilleikur fyrir Blika í keppninni og nú bíður liðsins leikur við sjálfa Evrópumeistarana í Frankfurt á fimmtudag, en Frankfurt burstaði lið Vitebsk frá Hvíta Rússlandi 6-0 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×