Fótbolti

Bremen hefur yfir gegn Chelsea

Þýski landsliðsmaðurinn Per Mertesacker fagnar marki sínu gegn Chelsea
Þýski landsliðsmaðurinn Per Mertesacker fagnar marki sínu gegn Chelsea NordicPhotos/GettyImages
Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sjö sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þýska liðið Werder Bremen hefur yfir 1-0 gegn Chelsea á heimavelli sínum og þá hefur Barcelona yfir 1-0 gegn Levski Sofia í Búlgaríu. Ekkert mark er komið í leik Liverpool og PSV, en markaskorara kvöldsins má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðu Vísis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×