Enski boltinn

Chelsea lagði Everton

Drogba og Ballack voru báðir á skotskónum í dag
Drogba og Ballack voru báðir á skotskónum í dag NordicPhotos/GettyImages

Englandsmeistarar Chelsea lentu tvisvar undir í leik sínum við Everton á útivelli í dag en náðu samt að hirða öll stigin og vinna 3-2 og halda því enn í við topplið Manchester United. Mikel Arteta og Joseph Yobo skoruðu mörk West Ham, en þeir Frank Lampard og Michael Ballack jöfnuðu fyrir Chelsea áður en Didier Drogba skoraði sigurmarkið með þrumuskoti skömmu fyrir leikslok.

Tottenham hefur yfir 2-0 í hálfleik á útivelli gegn Man City þar sem Calum Davenport og Tom Huddlestone skoruðu mörk Tottenham.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×