Lífið

Fyrsta lagið frá Lay Low

Listakonan Lay Low hefur nú sent frá sér titillag plötu sinnar sem kemur út í haust. Lagið heitir "Please dont hate me"
Listakonan Lay Low hefur nú sent frá sér titillag plötu sinnar sem kemur út í haust. Lagið heitir "Please dont hate me"
Nú er komið út fyrsta lagið hjá listakonunni Lay Low. Lagið er titillag hennar fyrstu plötu og ber hið skemmtilega nafn, "Please don't hate me". Upptökur á plötunni sjálfri eru langt á veg komnar og er áætlaður útgáfudagur þann 20. september næstkomandi.

Lay Low skaust fram á sjónarsviðið í byrjun þessa árs, en útgáfufyrirtækið COD Music gerði sér lítið fyrir og gerði við hana plötusamning eftir að hafa einungis heyrt tvær demóupptökur á internetinu. Síðan þá hefur hún spilað á fjölmörgum tónleikum víðsvegar um landið og fengið frábærar viðtökur frá fólki á öllum aldri. Lay Low mun spila á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í október.



Um Lay Low


Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir fæddist í London árið 1982 en þar býr faðir hennar sem er ættaður frá Sri Lanka. Ung að aldri fluttist hún til Íslands með móður sinni, sem er íslensk. Snemma byrjaði hún að læra á píanó en á unglingsárum færði hún sig yfir í önnur hljóðfæri eins og gítar og bassa. Lovísa hefur stundað nám í ýmsum tónlistarskólum og tók m.a. 1 ár í FÍH á rafbassa. Nú í haust er hún að hefja nám á Tónsmíðadeild Listaháskóla Íslands.

Lovísa hefur spilað með ýmsum hljómsveitum gegnum tíðina eins og Stratus, Blúsbandi Thollyar og Stardust Motel, og í dag leikur hún með hljómsveitinni Benny Crespo's Gang.

Það var ekki fyrr en snemma á þessu ári sem hún byrjar að semja sína eigin tónlist og koma fram undir nafninu Lay Low en nokkrum mánuðum áður hafði hún verið að byrja með kántrý band með vinkonum sínum, en helmingurinn af því bandi fór erlendis um tíma. Síðan þá hafa hlutirnir verið að gerast hratt og útgáfufyritækið Cod Music bauð henni plötusamning fyrir sólóverkefnið Lay Low.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.