Viðskipti erlent

Brasilíumenn að kaupa Corus?

Corus Tveir stálframleiðendur hafa keppst um að gera yfirtökutilboð í bresk-hollenska stálfyrirtækið Corus.
Corus Tveir stálframleiðendur hafa keppst um að gera yfirtökutilboð í bresk-hollenska stálfyrirtækið Corus. MYND/AFP

Slagurinn um bresk-hollenska stálfyrirtækið Corus harðnaði þegar brasilíski stálframleiðandinn CSN gerði yfirtökutilboð í fyrirtækið aðfaranótt mánudags. Tilboðið hljóðar upp á 4,9 milljarða punda eða um 667 milljarða íslenskra króna.

Verði af kaupum CSN á Corus verður til fimmti stærsti stálframleiðandi í heimi með 24 milljóna tonna framleiðslugetu á ári.

Tilboðið kom nokkuð á óvart enda hafði indverski stálframleiðandinn Tata Steel, sem fram til þessa hefur verið orðaður við Corus, fengið samþykki stjórnar Corus fyrir yfirtökutilboðinu í félagið nokkrum klukkustundum fyrr.

Síðasta tilboð Tata Steel hljóðaði upp á 500 pens fyrir hvern hlut í Corus eða jafnvirði 640 milljarða íslenskra króna. Tilboð CSN var hins vegar 15 pensum hærra og hefur verið haft eftir talsmanni fyrirtækisins að stjórn Corus hefði mælt með því við hluthafa stálframleiðandans að þeir tækju tilboðinu.

Kapphlaupið um Corus hefur keyrt verðið upp á bresk-hollenska stálframleiðandanum en gengið hækkaði um 5,5 prósent á markaði í dag. Gengið stendur nú í 527,75 pundum á hlut sem er 12,75 pensum yfir tilboði CSN.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×