Enski boltinn

Luke Moore frá út leiktíðina?

Luke Moore missir úr að minnsta kosti nokkra mánuði með liði Villa
Luke Moore missir úr að minnsta kosti nokkra mánuði með liði Villa NordicPhotos/GettyImages

Sóknarmaðurinn ungi Luke Moore hjá Aston Villa þarf að öllum líkindum að fara í uppskurð vegna þrálátra meiðsla á öxl og svo gæti farið að hann yrði frá keppni það sem eftir lifir tímabils vegna þessa.

Þessi tvítugi sóknarmaður hefur staðið sig vel á vinstri vængnum undir stjórn Martin O´Neill það sem af er leiktíðinni, en hann fór úr axlarlið í leiknum gegn Chelsea um helgina og það ekki í fyrsta skipti. Nú þykir læknum Villa nóg um og sýnt þykir að leikmaðurinn þurfi í uppskurð til að laga þetta vandamál, sem leikmaðurinn sjálfur segist hafa barist við í þrjú ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×