Enski boltinn

Við vorum betri aðilinn í dag

NordicPhotos/GettyImages

Sir Alex Ferguson vildi meina að hans menn í Manchester United hefðu verið betri aðilinn í leiknum gegn Chelsea í dag. United hefur enn þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar eftir leiki dagsins.

"Þetta var vel spilaður leikur af beggja hálfu en mér fannst sem við værum sterkari aðilinn í dag. Chelsea hafði heppnina með sér eins og svo oft áður, en við höfðum frumkvæðið í sóknarleiknum og vorum betra liðið," sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×