Þróttur upp og Reynir niður Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Sandgerði skrifar 28. september 2007 19:15 Magnús Már Lúðvíksson mundar hér kampavínsflöskuna í leikslok. Smellið á myndina til að stækka hana. Mynd/E. Stefán
Úrslit dagsins: Reynir-Þróttur 0-4 0-1 Jens Elvar Sævarsson (6.), 0-2 Adolf Sveinsson (16.), 0-3 Hjörtur Hjartarson (76.), Skúli Jónsson (90.) ÍBV-Fjölnir 4-31-0 Ingi Rafn ingibergsson, 1-1 Davíð Þór Rúnarsson (18.), 2-1 Atli Heimisson (40.), 2-2 Davíð Þór Rúnarsson (59.), 2-3 Atli Viðar Björnsson (60.), 3-3 Bjarni Hólm Aðalsteinsson (70.), 4-3 Ian Jeffs (73.). Leiknir-Víkingur Ó. 1-0 Stjarnan-Njarðvík 2-3 Fjarðabyggð-Grindavík 1-0 Þór-KA 2-1 Lokastaðan: 1. Grindavík 47 stig (+26 í markatölu) 2. Þróttur 47 (+23) 3. Fjölnir 45 (+32) 4. ÍBV 44 (+19) 5. Fjarðabyggð 37 (+6) 6. Leiknir 25 (-5) 7. Þór 24 (-7) 8. Njarðvík 23 (-7) 9. Stjarnan 20 (-5) 10. Víkingur, Ó. 20 (-11) 11. KA 19 (-31) 12. Reynir, S. 16 (-39) Þróttarar þakka áhorfendum fyrir stuðninginn. Smelltu á myndina til að stækka hana.Mynd/E. Stefán Bein textalýsing: 19.11 Úrslitin í Eyjum þýða að Grindavík er deildarmeistari. 19.08 ÍBV-Fjölnir 4-3 Leiknum er lokið í Eyjum og sigur heimamanna dugir þeim ekki til að komast upp. 19.07 Reynir-Þróttur 0-4 Varamaðurinn Skúli Jónsson skorar úr síðustu spyrnu leiksins og dómarinn flautar svo leikinn af. Þróttarar eru komnir upp! 19.02 Þór er komið yfir á móti KA fyrir norðan sem þýðir að Reynismenn eiga enn fræðilegan möguleika á því að komast upp. Til þess þyrftu þeir þó að skora átta mörk á þeim fáu mínútum sem eftir eru af leiknum. 19.00 Nú er ekki mikið eftir annað að gera í leiknum en að leyfa tímanum einfaldlega að líða út. Reynismenn reyna samt áfram að sækja en án mikils árangurs þó. Þróttarar voru kampakátir eftir leik og skáluðu í freyðivíni bæði á vellinum ...Mynd/E. Stefán 18.49 Hjörtur var rétt í þessu að fá kjörið tækifæri til að skora fjórða mark Þróttar. Hann var einn gegn markverði Reynis en skaut framhjá markinu. 18.47 Reynir-Þróttur 0-3 Hjörtur Hjartarson skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni. 18.46 Rautt og víti Dómari leiksins dæmir víti eftir að hafa ráðfært sig við aðstoðardómara og víkur því næst Martin Krüger, leikmanni, Reynis af velli. Hann braut á Hirti Hjartarsyni sem stillti sér upp á punktinn. 18.42 ÍBV-Fjölnir 4-3 Hvað er í gangi í Eyjum? Eyjamenn skora tvö mörk í röð og komast yfir, 4-3. Bjarni Hólm skoraði með skalla eftir horn og Ian Jeffs kom svo Eyjamönnum yfir með laglegu skoti eftir sendingu frá hægri kanti. 18.32 ÍBV-Fjölnir 2-3 Ótrúlegt upphaf á síðari hálfleik í Vestmannaeyjum. Fjölnismenn hafa skorað tvívegis og hafa tekið forystuna í leiknum. Davíð Þór skoraði öðru sinni með glæsilegu skoti og Atli Viðar Björnsson tók svo forystuna fyrir Fjölni með marki af stuttu færi. ... og í búningsklefanum.Mynd/E. Stefán 18.21 Heimamenn byrja betur og Jóhann Magni átti rétt í þessu algert dauðafæri. Hann hitti þó ekki markið úr mjög góðu færi. 18.19 Síðari hálfleikur er hafinn hér í Sandgerði sem og í öðrum leikjum dagsins. 18.05 Þá hefur einnig verið flautað til hálfleiks í Vestmannaeyjum. Forysta Eyjamanna er sanngjörn en Fjölnismenn hafa þó bitið frá sér á köflum og hafa væntanlega ekki sagt sitt síðasta í leiknum. 18.02 Flautað hefur verið til hálfleiks í leik Reynis og Þróttar. Eftir mörk Þróttara snemma í leiknum hefur leikurinn róast talsvert og hafa Reynismenn ekki gert sig mjög líklega til að saxa á forskot gestanna. 18.01 Fátt markvert hefur gerst síðustu mínúturnar hér í Sandgerði en þeim mun meiri harka hefur færst í leikinn. Reynismenn áttu þó ágætt færi rétt í þessu. 17.51 ÍBV-Fjölnir 2-1 Atli Heimisson hefur skorað annað mark ÍBV og hafa því Eyjamenn náð forystunni á nýjan leik. Sendingin kom frá vinstri kanti inn í teig og skoraði Atli af stuttu færi. Jens Elvar Sævarsson skorar fyrsta mark leiksins eftir að hann hirti skalla Hjartar Hjartarsonar sem hafnaði í slánni.Mynd/E. Stefán 17.50 Þróttarar koma knettinum í netið í þriðja skiptið en í þetta sinn er markið dæmt af þar 17.39 Rautt spjald Jakob Jónharðsson, þjáfari Reynis, hefur fengið að líta rauða spjaldið hjá dómaranum. Á leið sinni út af vellinum lét hann annan aðstoðardómarann heyra það. 17.32 Reynir-Þróttur 0-2 Adolf Sveinsson kemur Þrótturum í 2-0. Atli markvörður varði frá Þróttara en Adolf fylgdi á eftir með góðum skalla. Það þarf ansi mikið að gerast ef Þróttarar ætla að klúðra þessum leik. 17.30 ÍBV-Fjölnir 1-0 Ingi Rafn Ingibergsson hefur komið Eyjamönnum yfir gegn Fjölni. Sending kom frá hægri og voru tveir Eyjamenn einir og óvaldaðir í teig Fjölnismanna. Gestirnir úr Grafarvogi eru án nokkurra af sínum sterkustu leikmanna í dag. 17.23 Reynir-Þróttur 0-1 Jens Elvar Sævarsson er búinn að koma Þrótti eftir aðeins nokkra mínútna leik. Þróttarar áttu aukaspyrnu nálægt vinstri hornstönginni. Boltinn barst inn á teig og Hjörtur Hjartarson skallaði boltann í slána. Jens hirti frákastið og kom boltanum inn af stuttu færi. 17.18 Þróttarar voru ekki lengi að koma sér í fyrsta færið. Hjörtur Hjartarson fékk sendingu frá hægri og var í ágætu skotfæri en skaut beint á Atla í marki Reynismanna. 17.16 Leikurinn í Sandgerði er byrjaður. Það viðrar ágætlega á sunnanmenn en áhorfendur eru þó nokkrir, ekki síst Þróttarar sem eru komnir til að styðja sína menn áfram í þessum mikilvæga leik. 17.06 Byrjunarlið Reynis og Þróttar eru þannig skipuð: Reynir: Atli Jónasson; Tómas Ingi Agnarsson, Hafsteinn Helgason, Jacob Sermin, Darko Milojkovic, Brynjar Örn Guðmundsson, Martin Krüger, Þór Ríkharðsson, Árni Freyr Guðnason, Rasmus Krüger, Jóhann Magni Jóhannsson. Þróttur: Ólafur Gunnarsson; Birkir Pálsson, Hallur Hallsson, Þórður Hreiðarsson, Jens Elvar Sævarsson, Eysteinn Lárusson, Adolf Sveinsson, Þórhallur Hinriksson, Hjörtur Hjartarson, Magnús Már Lúðvíksson, Rafn Andri Haraldsson. 16.58 Nú er skammt til að flautað verði til leiks í leikjunum í lokaumferð 1. deildar karla. Spennandi barátta er á milli Þróttar og ÍBV um hvort liðið fylgi Fjölni og Grindavík upp í úrvalsdeildina. Reynir á litla möguleika á að bjarga sér frá falli. Reynismenn verða að vinna Þrótt með fimm marka mun og treysta á að Þór vinni KA norðan heiða.
Íslenski boltinn Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira