Körfubolti

Mætast enn á ný í úrslitaleik

Casey Rost hjá ÍS hefur skorað 27,3 stig að meðaltali í einvíginu og hitt úr 55% þriggja stiga skota sinna.
Casey Rost hjá ÍS hefur skorað 27,3 stig að meðaltali í einvíginu og hitt úr 55% þriggja stiga skota sinna. MYND/Anton

Haukar og ÍS mætast í dag í oddaleik í undanúrslitum Iceland Express-deildar kvenna og hefst leikurinn klukkan 16.00 á Ásvöllum. Þessi lið hafa spilað fimm sinnum upp á líf og dauða í keppnum undanfarin tvö tímabil, það er hafa mæst í leik þar sem sigurvegarinn komst áfram en tapliðið var úr leik. Það lið sem hefur unnið viðureignina hefur síðan farið alla leið og unnið titilinn.

Í fyrravetur sló ÍS lið Haukanna út úr bikarkeppninni með 63-32 sigri í Kennaraháskólanum en Haukarnir unnu oddaleik liðanna í úrslitakeppninni 91-77 en hann fór fram á Ásvöllum eins og sá í dag. Í vetur vann Haukaliðið undanúrslitaleik liðanna, 80-42, í Powerade-bikarnum í Höllinni, leik liðanna í meistarakeppninni í október og sló ÍS síðan út úr átta liða úrslitum bikarsins með 79-44 sigri í Kennaraháskólanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×