Handbolti

Ragnar hafði hægt um sig í sigri Nimes

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar Óskarsson skoraði fjögur mörk í gær.
Ragnar Óskarsson skoraði fjögur mörk í gær. Nordic Photos / AFP

Ragnar Óskarsson skoraði „aðeins" fjögur mörk í sigri USAM Nimes á Istres á útivelli, 27-25, í frönsku úrvalsdeildinni í gær.

Ragnar hefur yfirleitt verið markahæsti leikmaðurinn í liði Nimes en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar. Hann skoraði fjögur mörk úr fimm tilraunum í gær.

Nimes er í fimmta sæti deildarinnar með tólf stig eftir ellefu leiki. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×