Meintur fjárkúgari og lögfræðingur hans með sterk tengsl til Íslands Þórir Guðmundsson skrifar 29. október 2007 18:47
Einn hinna meintu fjárkúgara sem hótuðu að birta kynlífsmyndband af meðlimum bresku konungsfjölskyldunnar er Skoti af íslenskum ættum. Mikil og óvenjuleg tengsl eru við málið til Íslands. Ian Strachan, eða Paul Aðalsteinsson, er annar tveggja manna sem nú sitja í hinu alræmda Belmarsh fangelsi í Bretlandi. Lögregla tók þá á Hilton hótelinu í Lundúnum og segir að þar hafi þeir reynt að kúga 50.000 pund út úr bresku konungsfjölskyldunni. Giovanni di Stefano, bresk-ítalskur lögmaður Pauls, segir í samtali við Stöð tvö að hann neiti því alfarið að vera sekur um fjárkúgun. Di Stefano segist hafa myndbandið sem um ræðir og það sýni svo sannarlega ekkert kynlíf. Hins vegar sé á bandinu aðstoðarmaður kunningja sem tengist konungsfjölskyldunni tala um kynlíf tveggja fjölskyldumeðlima. Di Stefano gefur í skyn að um lágt setta meðlimi konungsfjölskyldunnar sé að ræða. Sjálfur hefur Di Stefano varið menn eins og Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu sem nú er látinn, og Saddam Hussein forseta Íraks, sem var tekinn af lífi. Di Stefano segist vera mikill aðdáandi Íslands, enda sé hann með heimili í Vestmannaeyjum og hafi bankareikninga á Íslandi. Skjólstæðingur hans, Paul Aðalsteinsson eða Ian Strachan, sé mikill Íslendingur, bjartur og bláeygur, hafi gaman af að drekka og skemmta sér eins og gjarnt sé um ungt fólk á Íslandi.
Mest lesið Umdeild sameining sánuklefa: „Mér finnst allir vera óánægðir með þetta“ Innlent Rannsókn lokið á veikindum á hálendi í sumar Innlent Fimmti hver ökumaður með óeðlileg afskipti við slysstað Innlent Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Erlent Flugfreyjan frestaði íbúðakaupum og fórnaði sparnaðinum í flugnám Innlent Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Erlent Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir hópslagsmál Innlent Bein útsending: Kynna niðurstöður um flugvöll og samgöngur Innlent Kristjana frá Rúv til Ásmundar Einars Innlent Fleiri fréttir Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Sjá meira