Enski boltinn

Kromkamp: Þetta er búið

Kromkamp lék áður með Liverpool
Kromkamp lék áður með Liverpool NordicPhotos/GettyImages

Jan Kromkamp, leikmaður PSV Eindhoven, viðurkennir að einvígið við Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sé þegar búið þó liðin eigi eftir að mætast öðru sinni á Anfield í Liverpool. Enska liðið vann öruggan sigur í fyrri leiknum í Hollandi í gærkvöld, 3-0.

"Okkur gekk ágætlega að ráða við þá í fyrri hálfleiknum en annað var uppi á teningnum í þeim síðari. Við reyndum að pressa á þá, en þá fengum við tvö mörk í andlitið - eitt eftir varnarmistök og annað eftir skyndisókn. Við verðum að vera raunsæir og einbeita okkur að deildarleikjum fram á vorið - við eigum enga möguleika á að komast áfram í keppninni úr þessu," sagði varnarmaðurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×