Handbolti

Jafnt hjá Kolding og Skjern

Vignir Svavarsson
Vignir Svavarsson Mynd/heimasíða Skjern

Sex leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Kolding og Skern skildu jöfn 30-30 þar sem Vignir Svavarsson skoraði 6 mörk fyrir gestina í jöfnum og æsispennandi leik.

Topplið FCK lagði Silkeborg á útivelli 36-28, en þar komst Arnór Atlason ekki á blað hjá FCK. Liðið er í efsta sæti deildarinnar og hefur þriggja stiga forskot á AGF sem komst í annað sæti með sigri á Ringsted. Sturla Ásgeirsson skoraði 3 mörk fyrir AGF en Þorri Björn Gunnarsson 1 fyrir Ringsted.

Frederica lagði Nordsjælland 28-22. Gísli Kristjónasson skoraði 3 mörk fyrir Frederica en þeir Hannes Jón Jónsson og Fannar Þorbjörnsson komust ekki á blað.

Úrslit kvöldsins í dönsku úrvalsdeildinni:

Fredericia - Nordsjælland 28 - 22

Kolding - Skjern 30 - 30

Bjerringbro/Silk - FCK 28 - 36

Skanderborg - Viborg 26 - 41

Tvis Holste - Mors/Thy 25 - 26

Århus - Ringsted 29 - 22




Fleiri fréttir

Sjá meira


×