Handbolti

Sjö mörk Vignis dugðu skammt

Fyrsta umferðin í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta kláraðist í gær. Vignir Svavarsson og félagar í Skjern steinlágu heima fyrir Kolding 33-24 þar sem Vignir var markahæstur í liði heimamanna með 7 mörk.

Arnór Atlason skoraði 3 mörk fyrir FCK í naumum sigri liðsins á Silkeborg 31-30. Ringsted tapaði heima fyrir Arhus 29-28 þar sem Sturla Ásgeirsson skoraði 3 mörk fyrir gestina en Þorri Gunnarsson skoraði 2 fyrir Ringsted.  

Frederica lagði Nordsjælland á útivelli 21-17 og þar skoraði Hannes Jón Jónsson 1 mark fyrir gestina.  Mors/Thy lá heima fyrir Holstebro 21-22 og loks vann Viborg öruggan heimasigur á Skandeborg 38-28.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×