Handbolti

Sonur Söndru og Daníels kominn í heiminn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Daníel Þór Ingason og Sandra Erlingsdóttir leika bæði í Þýskalandi.
Daníel Þór Ingason og Sandra Erlingsdóttir leika bæði í Þýskalandi. instagram-síða söndru

Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason, landsliðsfólk í handbolta, hefur eignast sitt fyrsta barn.

Sonur þeirra Söndru og Daníels kom í heiminn í dag. Sandra deildi gleðitíðindunum með fylgjendum sínum á Instagram.

Handboltaparið leikur í Þýskalandi; Sandra með Metzingen og Daníel með Balingen-Weilstetten.

Sandra var markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins á HM í fyrra. Ísland vann þá Forsetabikarinn.

Daníel lék sinn fyrsta landsleik 2017 og hefur farið á nokkur stórmót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×