Handbolti

Hreiðar með stórleik í Íslendingaslagnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hreiðar í leik með Sävehof.
Hreiðar í leik með Sävehof.

Hreiðar Levý Guðmundsson átti góðan leik í marki Sävehof sem vann sex marka sigur á HK Malmö, 29-23.

Guðlaugur Arnarsson var markahæstur í liði Malmö með fjögur mörk og Valdimar Þórsson gerði þrjú.

Hreiðar átti góðan leik og varði sérstaklega vel undir lok leiksins.

Fyrir leikinn hafði Sävehof tapað tveimur í röð eftir að hafa unnið fyrstu fjóru leikina á tímabilinu.

Liðið er nú í þriðja sæti deildarinnar, með jafnmörg stig og topplið Hammarby sem á leik til góða.

HK Malmö er í áttunda sæti deildarinnar með sex stig eftir sjö leiki. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×