Handbolti

Ciudad Real enn með fullt hús stiga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Stefánsson skoraði tvö mörk í gær.
Ólafur Stefánsson skoraði tvö mörk í gær. Nordic Photos / AFP

Ólafur Stefánsson skoraði tvö mörk þegar Ciudad Real vann Granollers í Íslendingaslag í spænsku úrvalsdeildinni í gær.

Ciudad vann öruggan sigur og það var ekki fyrr en í lokin sem að Granollers tókst að minnka muninn en lokatölur voru 30-28, Ciudad í vil.

Árni Þór Sigtryggsson náði ekki að skora fyrir Granollers í gær.

Hið sama má segja um Sigfús Sigurðsson, leikmann Ademar Leon. Hans menn gerðu jafntefli við Portland San Antonio, 30-30, í stórleik umferðarinnar á Spáni sem fór fram í gærkvöldi.

Ciudad Real er enn með fullt hús stiga eftir sex umferðir og situr eitt á toppi deildarinnar. Barcelona er í öðru, Portland í því þriðja og Ademar Leon í fjórða, fjórum stigum á eftir Ciudad Real.

Granollers eru í ellefta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir sex leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×