Innlent

Fleiri leita til Símavers Reykjavíkurborgar

Umtalsverð aukning varð í þjónustu Símavers Reykjavíkurborgar milli áranna 2006 og 2007. Þegar bornir eru saman fyrstu sex mánuðir áranna sést að 20% aukning símtala er á milli ára. Símaver Reykjavíkurborgar, sem stofnað var fyrir tveimur árum, er allsherjar upplýsinga- og þjónustuver fyrir borgarbúa.

Meginhlutverk þess er að tryggja íbúum borgarinnar greiðari aðgang að upplýsingum um þjónustu Reykjavíkurborgar með einu símanúmeri, 411-1111. Símaverið er stærsta upplýsingaveita landsins á sviði opinberrar þjónustu og stjórnsýslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×